Erlendur Pálsson
Erlendur Pálsson fæddist á Þrastarstöðum á Höfðaströnd í Skagafirði 20. október 1920.
Hann lést á heimili sínu á Móaflöt
20 í Garðabæ 28. mars 2004.
Erlendur var sonur hjónanna Hólmfríður Rögnvaldsdóttir húsfreyju Jónssonar frá Á í Unadal og Páll Erlendsson bóndi, organisti og söngstjóri, ritstjóri og kennari, síðar á Siglufirði, en hann var fæddur á Sauðárkróki, Faðir hans: Erlendur Pálsson verslunarstjóri þar og síðar á Grafarósi. Hólmfríður og Páll áttu auk Erlendar:
- Guðbjörg Pálsdóttir, verslunarstarfsmaður í Reykjavík, f. 1918,
- Ragnar Pálsson, bankastjóri á Sauðárkróki, f. 1924, d. 1987, og
- Guðrún Pálsdóttir, kennari í Reykjavík, f. 1937.
Erlendur Pálsson kvæntist 7. desember 1946 Sigrid Fridel Bjarnason (Hamelý),
Faðir hennar: Ásgeir Bjarnason rafveitustjóri á Siglufirði
Bjarnasonar Þorsteinssonar prests og tónskálds á Hvanneyri og Friedel Franz Bjarnason frá Karlsruhe í Þýskalandi.
Erlendur og Hamelí eignuðust tvö börn,
- 1) Sverri Pál Erlendsson, f. 1948, menntaskólakennara á Akureyri og
- 2) Edda Erlendsdóttir, f. 1954, þjónustustjóra.
Eiginmaður hennar
er Magnús Kristinsson byggingameistari í Garðabæ.
Börn þeirra eru:
- 1) Sigrún Magnúsdóttir, f. 1976, listasögunemi í Bergen í Noregi, maki Jón
Gauti Jónsson rekstrarfræðingur.
Börn þeirra- Pétur, f. 1976, og
- Berglind, f. 2003.
- 2) Kristinn, f. 1981, við ljósmyndanám í Florida í Bandaríkjunum, og
- 3) Erla, f. 1987, nemi í FG.
Erlendur ólst upp í foreldrahúsum á Þrastarstöðum og naut þeirrar barna- og unglingamenntunar sem viðgekkst á þeim tíma en lauk einnig prófi frá Bændaskólanum á Hólum. 1940 flutti hann með foreldrum sínum til Siglufjarðar og stundaði þar ýmis störf, meðal annars afgreiðslustörf og bílstjórastörf hjá Kjötbúð Siglufjarðar.
Lengst af dvölinni á Siglufirði var hann skrifari bæjarfógeta en var auk þess um árabil ökukennari. 1966 fluttu Erlendur og Hamelý suður, bjuggu skamma hríð í Reykjavík en byggðu 1968 hús á Móaflöt 20 í Garðabæ og bjuggu þar æ síðan. Þau unnu bæði á skrifstofu sýslumannsins í Gullbringu- og Kjósarsýslu meðan þau höfðu aldur til.