Rósa Þorsteinsdóttir
Rósa Þorsteinsdóttir f. 2. júní
1879 — d. 27. febr. 1968.
Hún var Þingeyingur að ætt og fædd á Húsavík 2. júní 1879 Skömmu eftir að hún fluttist til Siglufjarðar gekk hún að eiga
Anton Jóhannsson.
Þeim hjónum varð ekki barna auðið en tóku í fóstur og ólu upp sem sitt eigið barn Erlend Stefánsson Erlendssonar frá Grundarkoti
í Héðinsfirði.
Rósa heitin var fríð kona, prúðmannleg og aðlaðandi í allri sinni látlausu framkomu. í mörg ár starfaði hún af miklum dugnaði
í stjórn kvenfélagsins „Hlíf" — enda löngu kjörin heiðursfélagi þessa ágæta félags-
Hefir félag þetta, svo sem kunnugt er, beitt sér í
áratugi fyrir líknastarfsemi og átt drjúgan þátt í þeim árangri, sem náðst hefir með byggingu hins nýja sjúkrahúss hér í bæ.
Rósa
Þorsteinsdóttir lézt eftir allþunga sjúkdómslegu rúmum mánuði á undan manni sínum Antoni Jóhannsyni, og var hér jarðsungin að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Aage Schiöth