Ýmsar fréttir 1935
Siglfirðingur, 18. mái 1935
Ríkið hefir nú keypt síldarbræðsluverksmiðjuna á Raufarhöfn af firmanu Fdr. Gundersen í Bergen.
Kaupverð er 60 þúsundir krónur og ber seljanda að skila verksmiðjunni í rekstrarhæfu standi, svo hún geti unnið úr 800 síldarmálum á sólarhring.
Talið er að verðið sé viðunarlegt, enda þótt búist sé við, að miklu þurfi til að kosta, til þess að verksmiðjan verði starfhæf til frambúðar.
--------------------------------------------------------------------
Siglfirðingur, 1.júní 1935
Ríkisverksmiðjurnar hafa nú auglýst móttöku síldar 20. þ. m. Munu nokkur síldarskip nú þegar vera farin að útbúa sig til veiða.
Verður bráðlega byrjað á að dýpka við sumar verksmiðjubryggjurnar þar sem togurum og stærri síldarskipum verða ætlaðir löndunarstaðir.
---------------------------------------------------------------------
Siglfirðingur, 29. júní 1935
Síldveiðin gengur nú vel og eru mörg skipin þegar búin að fá mikla veiði á svona stuttum tíma. Mikil síld er þegar kominn í þrær verksmiðjanna og hófst bræðsla á fimmtudagskvöld.
Síldin er stór og tiltölulega feit um þennan tíma. Mikil áta er sögð í sjónum. Mestöll síldin veiðist frá Siglufirði til Skaga.
Allmargt skipa er enn ófarið á veiðar
--------------------------------------------------------------------
Siglfirðingur 6. júlí 1935
Síldveiðin.
Næst síðustu viku mátti kalla að allgóð veiði væri og veður hagstætt til síldveiða. En nú síðustu daga hefir brugðið til norðaustanáttar með köldum vindstrekkingi og lítið sést til síldar.
Á fimmtudagskvöld höfðu verksmiðjurnar hér fengið rúm 53.000 mál í þrær.
Nýja verksmiðjan (SRN) um 17 þúsund, eldri verksmiðjan um 20 og Pálsverksmiðjan rúm 15.
Aftur á móti hafa hinar, ríkisbræðslurnar, á Raufarhöfn og Sólbakka mjög litla síld fengið.
Raufarhöfn um 3.000 mál og hin eitthvað meira, enda hefir síldveiðin verið því nær eingöngu frá Siglufirði til Skaga.
Fitumagn síldarinnar hefir nú verið mælt og reyndist 16,5 prc.
Reyndar hefir ekki enn farið fram nema ein rannsókn, en líklegt er, að fitumagnið sé að meðaltali mjög nálægt þessu. Síldin er talsvert átumikil.
Veiði skipanna fram á föstudagskvöld er þessi, talin í málum:
Skipin hér fyrir ofan hafa lagt upp í Gránu og Rauðuverksmiðjurnar
Í Ríkisverksmiðjurnar SR þessi hér fyrir neðan: skip lagt upp:
-----------------------------------------------------------------------------
Siglfirðingur, 13. júlí 1935
Síldveiðin.
Hér skal talin veiði skipanna og miðast þá við það er bókfært hafði verið á skrifslofum verksmiðjanna á föstudagskvöld.
En þá lágu hér og biðu afferminga milli 20 og 30 skip. Hjá Ríkisverksmiðjunum var veiðin þessi:
Anna og Brynjar 574 mál - Alden 2449, Atli 1532, Ágústa 556, Ármann Rvk, 2548 Ármann Bíldudal, 2018, Árni Árnason 2292, Bára 802, Birkir 1498, Bjarnarey 1384, Björn 1613, Bangsi 1044, Björgvin 272, Eldborg 617, Fáfnir 838, Fjölnir 1626, Fróði 2072, Fylkir 387, Freyja 312, Frigg 478, Geir goði 546, Geysir 1485 Grótta 2052, Gotta 167, Hafaldan 972, Hilmir 2188, Hrefna 1119, Hrönn 2062, Hvítingur 953, Huginn 2330, Heimir 492, Jakob 982, Jón Þorláksson 691, Kári 578, Kjartan Ólafsson 999, Kolbeinn ungi 1667, Kolbrún 1345, Kristjana og Stathav 496, Leó 458, Málmey 1304, Minnie 2891, Mjölnir 273, Már 2452, Nanna 2530, Njáll 198, Olaf 468, Ólafur Bjarnason 3627, Pétursey 1563, Pilot 780, Rifsnes 976, Sigríður 1263, Sindri 332, Sjöfn 1491, Skagfirðingur 1354, Skúli fógeti, 329 Sleipnir 132, Snorri 1115, Stella 703, Súlan 810, Svanur 623, Sæborg 1839, Sæfari 1897, Sæhrímnir 2227, Valur 544, Venus 2355, Víðir 756, Vonin 646, Þorgeir goði 2552, Þorsteinn 919, Þór 1694, Þórir 390, Ægir og Muninn 1012, Örn 2054, Gunnbjörn 2476, Ísbjörn 1673, Valbjörn 2255, Vébjörn 3464, Ásbjörn 2921, Auðbjörn 2651, Sæbjörn 1937.
Hjá Snorra og Hjaltalín er veiðin þessi :
Höskuldur 3626, Erna 2205, Freyja 2867, Víðir 251, Höfrungur 208, Huginn I 2441, Huginn II 2694, Huginn III 1649, Hermóður 1221, Haraldur 882, Bjarki 349, Garðar 669, Harpa 449, Svalan 646, Kári 621, Erlingur II 250
--------------------------------------------------------------
Siglfirðingur, 27. júlí 1935
Sí1darafli skipanna er lagt hafa upp afla sinn í síldarverksmiðjurnar hér á Siglufirði, það sem af er vertíð, er sem hér segir:
Í Ríkisverksmiðjurnar hafa þessi skip lagt upp afla sem hér er talin í málum:
Anna og Brynjar 754, Alden 3692, Atli 2037, Ágústa 1198, Ármann Rvik 2548, Ármann Bíldudal 3867, Árni Árnason 3007, Bára 931, Birkir 1498, Bjarnarey 1429, Björn 2568, Bangsi og Sæþór 1538, Björgvin 660 Eldborg 617, Fáfnir 839, Fjölnir 1626, Fróði 2588, Fylkir 462, Freyja 502, Frigg 605, Geir goði 1190, Geysir 1663, Grótta 2643, Gotta 383, Hafaldan 1329, Hilmir 2533, Hrefna 1119, Hrönn 3414, Hvítingur 1080, Huginn 2330, Heimir 943, Jakob 1250, Jón Þorláksson 1025, Kári 1028, Kjartan Ólafsson 1522. Kolbeinn ungi 2698, Kolbrún 1484, Kristjana og Stathav 865, Leo 841, Málmey 1705, Minnie 2891, Mjölnir 273, Már 2452, Nanna 2951, Njáll 354. Olav 468, Ólafur Bjarnason 4133, Pétursey 2371, Pilot 1415, Rifsnes 2708, Reynir og Víðir 233, Sigríður 2445, Sindri 927, Sjöfn 1725, Skagfirðingur 1742, Skúli fógeti 617, Sleipnir 132, Snorri 1483 Stella l040, Súlan 810, Svanur 623, Sæborg 2420, Sæfari 3027, Sæhrímnir 3862, Úðafoss og Reynir 139, Valur 544, Venus 2559, Víðir 755, Vonin 731, Þorgeir goði 2552, Þorsteinn 1536, Þór 2395, Þórir 760, Ægir og Muninn 1344, Örn 2677, Gunnbjörn 3107, Ísbjörn 2432, Valbjörn 2813, Vébjörn 4053, Ásbjörn 3979, Auðbjörn 3339, Sæbjörn 2430.
Hjá Hjaltalín og Snorra hafa þessi skip lagt upp sem hér segir:
Höskuldur 4413, Erna 3407, Víðir 351, Höfrungur 408, Huginn I 3275, Huginn II 3300, Huginn III 2706, Hermóður 1633, Percy 330, Haraldur 1747, Brúni 137, Bjarki 1141, Garðar 1179, Harpa 1053, Svalan 896, Þór 249, Freyja 5228, Draupnir og Búni 1251, Kári Bragi og Gullfoss 1211, Einar Skúli og Þorkell Máni 1069, Villi og Erlingur 834, Magni 25.
Ríkisverksmiðjurnar hafa alls tekið móti 143.622 málum.
Gránuverksmiðjan 9.155.
Rauðka 26.500.
-----------------------------------------------------------------------
Siglfirðingur, 27. júlí 1935
Síldarsöltunin hefir gengið treglega að þessu, og eru margir hræddir um að síldveiðin mundi verða með minna móti í ár.
Er þó næsta lítið mark takandi á slíkum spám, því svo er enn um síldina eins og kreppuna og vindinn, að enginn veit hvaðan hún kemur eða hvert hún fer.
Nú mun hafa verið saltað hér á Siglufirði um hálft 5 þúsund tunnur, mest venjuleg saltsíld, og fer fyrsta síldarsendingin út með Gullfossi í kvöld
--------------------------------------------------------------------------
Neisti, 12. september 1935
Karfaveiðin gengur ágætlega. Hingað hafa komið togararnir Skallagrímur með 34 tonn, Snorri goði með ca. 160 tonn og Sindri með 130-140 tonn.
Tryggvi gamli og Hávarður Ísfirðingur fóru á veiðar í fyrrakvöld og eiga þeir að koma með aflann hingað.
-----------------------------------------------------------------------------
Neisti, 25. september 1935
Karfaveiðar.
Um helgina komu þeir hingað togararnir, Skallagrímur með 172 tonn og Tryggvi gamli með 143 tonn.
Karfan veiddu þeir á Hala miðum. - Til Sólbakka komu þeir Snorri goði með 186 tonn, Gulltoppur með 213 og Sindri með 134 tonn.
Skallagrímur kom hingað í morgun með um 30 tonn. Leitaði hann víða hér fyrir norður landi en fékk hvergi neitt að ráði.