Þóroddur Guðmundsson

Þóroddur Guðmundsson - Heimild og ljósmynd: Vefur Alþingis

Þóroddur Guðmundsson, fæddur á Siglufirði 21. júlí 1903, dáinn 3. október 1970.

Foreldrar: Guðmundur Jörundsson (fæddur 31. ágúst 1879, dáinn 9. nóvember 1912, drukknaði) skipstjóri, síðar útvegsbóndi á Þönglabakka og kona hans Sigríður Sigurðardóttir (fædd 23. júlí 1876, dáin 7. desember 1957) húsmóðir.  

Mágur Áki Jakobsson alþingismanns og ráðherra. 

Maki Þóroddar (sambúð): Halldóra Eiríksdóttir (fædd 26. ágúst 1913, dáin 27. mars 1992) húsmóðir

Foreldrar: Eiríkur Bóasson og kona hans Elín Elísabet Engilbertsdóttir.

Börn Þóroddar og Halldóru:

1) Margrét Þóroddsdóttir (1937),

2) Eiríkur Þóroddsson (1941),

3) Guðmundur Jörundsson Þóroddsson (1948),

4) Steinþór Þóroddsson (1954).

Þóroddur var sjómaður á Siglufirði um langt skeið, en rak þar síðan útgerð og síldarsöltun. Starfsmaður verkalýðsfélaganna á Siglufirði um tíma.

Sat í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins frá 1944 til æviloka.

Landskjörinn alþingismaður (Eyfirðinga) 1942–1945 (Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn). (Varaþingmaður, tók sæti á Alþingi 19. nóvember 1942 vegna forfalla Þórðar Benediktssonar og sat á þingi til 14. nóvember 1945.)

2. varaforseti sameinaðs þings 1945. Ritstjóri: Verkamaðurinn (1934–1938).